bloggsvæði Svenna

Hallo

06.10.2007 09:57:22 / svenni80

Algjör snilld

 

Ég rakst á þetta á netinu um daginn og vað bara að leyfa ykkur að njóta þess að sjá þetta.

http://www.youtube.com/watch?v=Z4Y4keqTV6w

 

Einsog þið sjáið er þetta önnur færslan mín á 2 dögum þannig að það er aldrei að vita nema ég sé bara byrjaður að blogga aftur.

En allavega endilega kíkið á þetta vídeó það er drep fyndið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 13:34:56 / svenni80

ÉG NÖRD?????? Held nú ekki

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 07:54:17 / svenni80

Smá meira

Jæja þá er maður fluttur reyndar í byrjun febrúar í 2 hæða lúxus íbúð á Christjanshavn.

Ég og Halldóra vorum búinn að bíða í næstum 1 mánuð eftir borvél sem við áttum að fá lánaða hérna á kolleginu og erum loksins búin að fá hana. Pabbi er komin í heimsókn til okkar í 3 sinn held ég á þessu ári og við vorum öll 3 að setja upp hillur, myndir og dót á veggina á fimmtudag.

Myndir af íbúðinni koma öruglega bráðum á Halldóru blogg ég nenni ekki að reyna setja þær á myndasíðuna mína ég bara man ekki hvernig það er gert.

Annars er allt gott að frétta Halldóra er í burtu yfir helgina þannig að ég og pabbi erum bara í róllegheitum hérna að hafa það gott og drekka svolítið af bjór og erum svo að fara að horfa á fótbolta í dag.

Ég ákvað að segja ykkur þetta en lofa ekki hvort það komi meira blogg í bráð en hver veit.


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 11:21:03 / svenni80

Haettur

EG ER HAETTUR AD BLOGGA

 NENNI TESSU EKKI LENGUR.

 TAKK FYRIR AD KIKJA A SIDUNA

MINA.

LATER

.


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 15:19:12 / svenni80

Gaman gaman

Comentaðu nafninu þínu og..


1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt


» 15 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 08:46:27 / svenni80

Afsakið Hléið

Ég vil byrja á því að óska Elsu og Helga til hamingju með litlu stelpuna. Ég er búinn að vera voðalega lélegur að blogga undanfarið af því að ég hef í rauninni ekkert að segja og ég er ekki einn af þeim sem get bullað um allt milli himins og jarðar einsog sumir hóstóskarhóst :lol:

Ég og Halldóra erum að fara á Sálina hérna í kvöld rándýrt á þetta ball þannig að ég vona að það verði gaman. Ætlunin hjá okkur Halldóru er að fara heim til Íslands  um jólin en ég er ekkert búinn að spurja um frí í vinnunni eða neitt. Jæja ég er að fara að fá mér eitthvað að borða og vona að ég verði komin með eina færslu innan viku :D

Annars bið ég bara að heilsa

LATER


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 13:48:05 / svenni80

Um allt og ekkert

Jæja þá er komin föstudagur og helgin komin mikið er það ljúft. Vinnan sem ég er í er bara þræl skemmtileg þetta var einhver miskilningur í mér að ég ætti að brjóta veggi ég er að setja upp skápa og stokka í nýbyggingu svaka gaman. Annars er það aðalega að frétta að Halldóra fékk sér nýjan ilder um daginn og er hann svaka bangsi. Halldóra er að fara í viku frí núna og er að fara að læra í því afþví hún er að fara bráðum í próf. Ég þarf að fara út í búð núna læta heyra frá mér síðar.

Later


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 16:03:59 / svenni80

Rugl dagur

Jæja einsog ég sagði frá í gær þá sótti ég um nokkrar vinnur og svörin létu ekki bíða eftir sér. Í morgun þegar klukkan var 10 þá hringdi síminn og ég svara, hinumegin á línuni var kona sem sagðist vera að hringja út af vinnu og ég bara okei og hvenar á ég að byrja??????  Þá svarar konan bara sem fyrst og ég segi hvað segirðu um klukkan 12? neinei það er allt of seint þannig að ég átti bara að mæta strax. Ég legg svo af stað klukkan hálf 11 og fer úr lestinni klukkan sirka 5 mín í 11 og byrja að labba og labba og labba, alveg lost veit ekkert hvert ég á að fara spyr fólk og það bendir bara eitthvað og ég labba þangað en ekkert þar þannig að ég hringi í konuna og segi að ég sé villtur þetta var svona 11:10. Konan segir við mig að hún ætli að hringja í einhvern sem geti lýst því hvar þetta er og hann eigi svo að hringja í mig. Aldrei hringir síminn og ég labba bara í hringi liggur við, þannig að klukkan 11:20 hringi ég aftur og er svona að átta mig á því hvar ég er EN þá segir konan að ég geti bara farið heim þau þurfi mig ekkert lengur (hellvítis pakk) þannig að ég labba auðvitað fram hjá þessum stað en bara hálftíma of seint og fer svo bara heim.

Það góða við þetta allt sama er að ég fékk líka símtal í morgun sem var um vinnu og ég átti að mæta í viðtal klukkan 16 sem ég og gerði og viti menn kallinn bara komin með vinnu. Ég á að mæta klukkan 6:40 út á Nörreport station í fyrramálið og þar verð ég sóttur. Vinna felst í því að ég held að gera við hús og eitthvað svoleiðis bara byggingarvinna. Það sem bíður mín svo á morgun er að fara að brjóta niður veggi með einhverju svaka tæki. Ég veit ekki hvort ég hafi úthald í það en það verður bara að koma í ljós en alla vega er ég komin með vinnu og er bara nokkuð sáttur. Þetta er örruglega lengsta færsla sem ég hef skrifað þannig að það er bara komin tími á að hætta þessu og fara að leika sér í FM2005 en þangað til næst bið ég bara að heilsa og óska öllum vel að lifa.

Later


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 18:47:25 / svenni80

Vinna

Jæja haldiði ekki að ég hafi sótt um einar 5 vinnur í dag og aðrar 5 eða fleiri á morgun, ég er að vakna til lífsins enda timi til komin.

Ég og Halldóra vorum rosa róleg um helgina leigðum okkur 3 spólur á föstudag sem voru mis góðar en þetta voru myndirnar Nordkraft sem var bara alveg ágæt svolítið langdregin en samt skemmtileg svo var það hryllingurinn sem heitir The Other Side of Heaven þessi mynd er algjör viðbjóður og að lokum var það The Texas Chainsaw Massacre sem ég sofnaði yfir. 

Annars er bara allt gott að frétta héðan ágætis veður úti og allt í ljómandi standi. Ég vil minna fólk á að kíkja á alveg magnaða síðu http://www.blog.central.is/ros_ og endilega að skrifa í gestabókina hjá okkur félögum.

Bið að heilsa er að fara í FM2005 og gera Real að meisturum en þangað til næst lifið í lukku en ekki krukku

Later


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 06:58:16 / svenni80

Komin heim

Jæja þá er maður komin heim frá Mallorca og er bara smá brúnn og sætur (ekki það að maður hafi ekki verið sætur fyrir). Það gerðist svosem ekkert merkilegt í þessari ferð fyrir utan það náttúrulega að amma mín varð 75 ára. Við fórum í voðafína grillveislu eitt kvöldið og svo fórum við í dagsferð um eyjuna og skoðuðum fullt af flottum stöðum. Ég bara nenni ekki að vera að skrifa ferðasöguna í einhverjum smáatriðum þannig að ég set bara nokkrar myndir inn á síðuna mína. En núna er ég kom til Köben og engin utanlandsferð framundan þannig að fólk getur farið að koma í heimsókn ef það vill. Bið að heilsa og hlakka til að sjá commentin frá ykkur.

Later


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 06:33:26 / svenni80

Mallorca

Jæja þá er klukkutími í að ég fari að leggja af stað út á flugvöll til að taka næsta flug til Mallorca. Ég hugsa að ég bloggi ekkert þarna úti þannig að það verður ekkert blogg næstu 2 vikur. Bið að heilsa.

 LATER


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2005 07:11:23 / svenni80

Snilld

Þetta verðið þið að horfa á þetta er alveg drep fyndið. http://massdestraction.com/1239-New_great_made_complation.html


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2005 12:02:14 / svenni80

Keane

Jæja þá er ég búinn að átta mig á að Keane er alveg mögnuð hljómsveit. Ég fór á nettið og náði mér í nokkur lög með þessu bandi og ég verð bara að segja að þetta hljómar alveg hellvíti vel.

Núna fer að styttast í að maður verði á Mallorca með bjór í hönd liggjandi á ströndinni ussssssss maður hefur það nú ansi gott.

Annars er það að frétta að ég fór á pub með Fannari, Hákoni og 2 vinum hans í gær að horfa á Danmörk rústa Georgíu 6-1 svo var farið í pool eftir það þar sem ég stóð uppi sem sigurvegari en ekki hvað :D

Ég er smá þunnur núna þannig að ég nenni ekki að skrifa meir ég bið bara að heilsa.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2005 07:10:13 / svenni80

Lífið og tilveran

Góðan daginn börnin góð.

Síðustu daga er ég búinn að hanga fyrir framan þessa tölvu og tala við fólk á msn og skoða allar síður á nettinu. Ég talaði við hann Nonna frænda minn í gær og það var gaman. Nonni og Siggi frændi eru í skóla í stór bænum Horsens.

Snúum okkur nú að öðru alvarlegra máli og það er LIVERPOOL. Hvað er í gangi hjá þessu liði þeir bara geta ekki fengið menn til sín nema einhverja menn sem engin hefur heyrt um en samt kosta þeir alveg 10 milljon pund eða eitthvað álika. Ég er bara ekki sáttur :klikk: með þetta en vonandi batnar þetta í janúar þegar þeir geta byrjað að kaupa aftur.

Veriði dugleg að skrifa í gestabókina mína og comment til að ég geti allavega ímyndað mér að það sé einhver sem er að skoða þessa síðu. Annars skil ég alveg að fólk sé hætt að kíkja á hana ég var svo óduglegur að skrifa á hana í sumar af því ég var ekki með tölvu heima. (góð afsökun) skráið ykkur á msnið mitt ef þið hafið eitthvað að segja.   MSNIÐ er svenni_dora@yahoo.com

LATER




» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2005 21:32:24 / svenni80

Myndir

Ég var að setja inn nýjar myndir endilega að kíkja á þær.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Ýmislegt fólk
Myndir
Flottu strákarnir